MC KobZ feat. Ruþmi & Melódía (2002)
MC KobZ (aka Jakob Tómas Bullerjahn) -
Rímnaböst og kveðskapur. Ruþmi (aka Andri Ólafsson) - Vókaltrommur og
killa'beatz. Melódía (aka Skúli Á. Sigurðsson) - Bassaleikur og "jattla flá þig
lifandi"-attitúd.
MC KobZ og föruneyti hans er upprennandi
tríó sem leikur hip-hop/rap með lifandi undirleik, sem er ásamt djúpum
textum KobZ "trademark" sveitarinnar. Frontmaðurinn og
rímnamasterinn lætur sér ekki nægja að rappa um mellur, dóp, áfengi og
mömmu þína heldur tekur hann einnig fyrir trúarbrögð og pólitík.
Undirleikur plebbans, sem kýs að spila á bassa þó hann kippi í gítarinn
endrum og eins, einkennist af grípandi línum, sterku andrúmslofti og
taktföstu grúvi. Það sem þykir gefa sveitinni ákveðinn ferskleika eru
"vókal"-beatin sem Ruþmi "syngur". Slíkt er lítt þekkt
en hefur gefist vel að sögn þremenninganna. Einn meðlimur sveitarinnar
lýsir tónsmíðum sveitarinnar á þessa leið: "...mér finnst ég ekki
vera að spila rapp. Þetta er Metall. Heavy-Metall rappsins." MC KobZ feat.
Ruþmi & Melódía unnu Óðrík Algaula 2002, tónsmíðakeppni MH, ásamt
tónlistarmanninum Cucular.
Fullunnin lög með MC KobZ feat. Ruþmi &
Melódía:
1.
Kristsfall* [live] (Bullerjahn/Ólafsson/Sigurðsson)
2. Kristsfall (Bullerjahn/Ólafsson/Sigurðsson)
3. Valhöll skelfur (Bullerjahn/Ólafsson/Sigurðsson)
4. Óli prik (Gömul barnagæla, úts.
Bullerjahn/Guðmundsson/Ólafsson/Sigurðsson)
Lög í vinnslu: 2
Efni með MC KobZ feat. Ruþmi & Melódía
gefið út af Ræsinu:
Kristsfall (smáskífa), 23. desember
2002.
Koma fram á:
Óðríkur Algaula 2002 (2CD), nóvemberlok
2002.
(Til að vista á tölvu: PC: Hægri smellið
á linkinn og veljið "Save target as..." Mac: Fáið ykkur PC!)
(Öll lög tekin upp í Ræsinu, nema *)